


Ferðaþjónustan er lykilþáttur í uppbyggingu lífskjara okkar allra
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
Það stefndi allt í það að árið 2023 yrði fyrsta árið síðan 2018, þar sem ferðaþjónusta á Íslandi gæti starfað á nokkuð eðlilegum forsendum. Sú von fór fyrir bí, þegar jarðhræringar á Reykjanesskaga færðust yfir á alvarlegt stig og rýma þurfti Grindavíkurbæ með nánast engum fyrirvara.
Þessir atburðir, eldsumbrotin á Reykjanesi, og fréttaflutningur tengdur þeim virðist hafa haft meiri áhrif á ferðaþjónustuna en menn gerðu sér grein fyrir. Í janúar dvöldu erlendir ferðamenn til dæmis skemur og eyddu minna í ferðum sínum hér miðað við sama tíma í fyrra og óvíst er með framhaldið.
Það eru þó ekki eingöngu jarðhræringarnar og afleiðingar þeirra sem talið er að að valdi þessu. Efnahagslegar forsendur hafa nú leitt til þess að við erum að verða undir í verðsamkeppni enn einu sinni, auk þess sem hin svokölluðu Covid-áhrif eru nú að fjara út.
Ísland sem áfangastaður hagnaðist á því að fjarmarkaðir hafa verið meira og minna lokaðir. Þessir markaðir eru nú aftur opnir og lokka til sín ferðamenn á góðum kjörum.

Auk þessa höfum við nú eftir faraldur dregið verulega úr neytendamarkaðssetningu, öfugt við keppinauta okkar. Ekki hjálpuðu heldur nýjustu útspil yfirvalda í skattlagningu á greinina. Þeir skattar, sem settir voru á nánast fyrirvaralaust, hafa valdið greininni miklum vandræðum og beinu fjáragslegu og ímyndarlegu tjóni.
Árið 2023 var hins vegar þegar upp var staðið gjöfult. Ferðaþjónusta á Íslandi náði vopnum sínum og gjaldeyristekjur af greininni náðu sömu hæðum og fyrir faraldur. Ferðaþjónusta er nú aftur orðin stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar og því ber auðvitað að fagna. Fjárhagur samtakanna, sem var verulega laskaður eftir faraldurinn, hefur nú samhliða bata í greininni, náð sér á strik og náð jafnvægi. Það er mjög mikilvægt og ekki síður ánægjulegt.
Samtök ferðaþjónustunnar höfðu að vanda í nógu að snúast á starfsárinu. Auk hefðbundinnar starfsemi var aðgerðaáætlun atvinnugreinarinnar og hins obinbera í ferðaþjónustu fyrirferðarmikil, en bæði starfsfólk og margir félagsmenn tóku þátt í því viðamikla og mikilvæga verkefni. Við vonum svo sannarlega að aðgerðaáætlunin hljóti hljómgrunn og verði ferðaþjónustu á Íslandi til framdráttar. Auk þess tóku SAF þátt vinnu við gerð svokallaðra Loftslagsvegvísa atvinnulífsins, en um tvö hundruð manns komu að þeim hluta verkefnisins sem tengjast ferðaþjónustu.
Samtök ferðaþjónustunnar fögnuðu 25 ára afmæli þann 11. nóvember 2023 og var af því tilefni haldin glæsileg ráðstefna á Hilton Hotel Nordica, þar sem málefni líðandi stundar í ferðaþjónustu voru krufin á 16 mismunandi málstofum. Sjaldan eða aldrei hefur verið haldinn eins glæsilegur og fjölmennur viðburður á vegum íslenskrar ferðaþjónustu.
Í desember kynntu SAF síðan tímamótaverkefni, en það var útreikningur á skattspori ferðaþjónustunnar. Samtökin fengu Reykjavík Economics til að reikna út skattsporið og kom þar ýmislegt áhugavert í ljós og ljóst að ferðaþjónustan er að skapa jafnvel meiri verðmæti en áður var talið.
Kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins við stóran hluta almenna vinnumarkaðarins hafa nú verið undirritaðir, eftir langa og stranga kjaralotu. Kjarasamningarnir eru með töluvert öðru sniði en undanfarin ár, þar sem samið var um tiltölulega hóflegar launahækkanir, sem hafa það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Vissulega fylgir kjarasamningnum myndarlegur aðgerðapakki frá stjórnvöldum, sem enn er óljóst hvernig verða fjármagnaður. Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á það við stjórnvöld að skattahækkanir á atvinnulífið séu ekki í boði, en reynslan kennir okkur að þar gæti brugðið til beggja vona. Það má allt eins búast við að ferðaþjónustunnar bíði þar barátta, þar sem mörgum finnst það liggja í augum uppi, að ferðaþjónustan eigi og geti lagt miklu meira til samfélagsins. Það er þó mikill léttir að búið sé að skrifa undir langtímasamninga, sem vonandi tryggja fyrirsjáanleika og frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin. Það að skrifað hafi verið undir er sérstaklega jákvætt fyrir ferðaþjónustuna, þar sem ljóst var að hún hefði enn og aftur orðið skotspónn verkfallsaðgerða verkalýðshreyfingarinnar.
Ég læt nú af störfum sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar eftir sex ára setu, en ég tók við formennsku af Grími Sæmundsen þann 21.mars árið 2018. Þessi sex ár hafa verið viðburðarík í meira lagi og hafa verið mér mikill lærdómur. Það hafa verið forréttindi að fá að standa í stafni okkar frábæru samtaka og vera talsmaður þeirra, oft á víðsjárverðum tímum þegar mikið hefur gengið á. Aldrei eru samtökin mikilvægari en þegar skóinn kreppir að og þau hafa í ólgusjó síðustu ára margsannað gildi sitt. Ferðaþjónustan er hægt og rólega að ávinna sér þann sess, sem hún á skilinn – bæði í samfélagi atvinnugreinnanna, hjá stjórnvöldum og meðal almennings. Ferðaþjónustan er farin að taka sér pláss þar sem hún á heima og það er vel. Þróun hennar undanfarin ár hefur verið ævintýri líkust og enn sér ekki fyrir endann á henni. Það eru að verða alls konar breytingar á starfsumhverfi hennar og nýir þátttakendur, ný tækni og nýir fjárfestar með nýja nálgun eru að verða sífellt meira áberandi. Allt er þetta jákvætt, þar sem þörfin fyrir bæði fagmennsku, fjárfestingu og aukna samlegð er sífellt að aukast. Þörfin fyrir að standa vörð um hagsmuni greinarinnar hefur þó ekkert minnkað og það er ýmislegt á sjóndeildarhringnum, sem þarf að fylgjast vel með og stíga fast til jarðar þegar þörf verður á.
Ég stíg nú sátt frá borði og óska Samtökum ferðaþjónustunnar, nýjum formanni og stjórn allrar gæfu og góðs gengis í framtíðinni. Bestu þakkir færi ég öllum þeim fjölmörgu sem ég hef átt í samskiptum og samvinnu við í síðastliðin sex ár. Sérstakar þakkir fá þó starfsmenn SAF, sem hafa staðið sem klettar við hlið mér, stjórnir SAF á þessum tíma og félagsmenn SAF, sem ég þakka innilega fyrir traustið sem ég hef alla tíð fundið fyrir og hefur styrkt mig í þeim fjölbreyttu verkefnum sem formennska í SAF hefur fært mér.
Góðar stundir!

Ferðaþjónusta í efnahagslegu samhengi
Árið 2023 var fyrsta heila árið síðan 2019 þar sem engar ferðatakmarkanir voru í gildi hérlendis og stefndi lengi vel í að það yrði án verulegra ytri áfalla fyrir starfsemi ferðaþjónustunnar. Aftur á móti varð sú ekki raunin þar sem jarðhræringar á Reykjanesi settu, vægt til orða tekið, strik í reikninginn. Eldsumbrotin og fréttaflutningur tengdur þeim höfðu – og hafa líklega enn – í för með sér neikvæð áhrif á eftirspurn, að minnsta kosti tímabundið. Líkt og fram kom hjá innlendu flugfélögunum, Icelandair og Play, dró nokkuð hratt úr sölu á flugferðum til Íslands og voru nýtingarhlutföll heldur verri en búist var við og felldu bæði flugfélögin þáverandi afkomuspár sínar úr gildi í nóvember síðastliðnum. Þá er ónefnt það rekstrarumhverfi sem ferðaþjónustufyrirtæki og önnur fyrirtæki hér á landi bjuggu við á árinu 2023 sem og verkföll flugumferðastjóra í lok árs.
Innra starf
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar 2023 var haldinn í Stykkishólmi í mars og kosið var til stjórnar með rafrænum hætti.
Stjórn samtakanna hittist á 12 formlegum fundum á starfsárinu, en stjórn hafði einnig með sér mikil óformleg samskipti vegna ýmissa mála í umfjöllun hjá Samtökunum og samstarfs við stjórnvöld.
Nýir félagsmenn tóku sæti í fagnefndum á aðalfundi, en starf fagnefnda samtakanna er grundvallarstoð í starfi þeirra. Sömuleiðis hafa orðið breytingar á fulltrúum samtakanna í nefndum og ráðum á vegum ýmissa samstarfsaðila. Þá áttu SAF sem fyrr mikið og gott samstarf við skrifstofu SA um ýmis verkefni.
Á skrifstofu SAF störfuðu sex starfsmenn í 6 stöðugildum lengst af árinu, en í lok sumars bættist starfsnemi við í fullu starfi.


Samskipti og samstarf
við
stjórnvöld og hagaðila
Eins og ætíð áttu SAF í miklum samskiptum við stjórnvöld og stofnanir á árinu, enda eitt af lykilhlutverkum samtakanna. Samtökin veittu mikinn fjölda umsagna við frumvörp og reglugerðir ásamt því að vinna að úrlausn mála fyrir aðildarfyrirtæki gagnvart stofnunum og öðrum stjórnvöldum.
Samstarf SAF við systursamtök á Norðurlöndum og í Evrópu var mikilvægt að vanda og árið litaðist mjög af stórum verkefnum á borð við Loftslagsvegvísa atvinnulífsins, vinnu við stefnu og aðgerðaáætlun um ferðaþjónustu til 2030 og útgáfu skýrslu um skattspor ferðaþjónustunnar.
Á vegum SAF eru einnig unnar greiningar og efni um ýmis mál sem styðja og styrkja málflutning samtakanna á ýmsum vettvangi, og njóta samtökin þar góðrar samvinnu við ýmsar stofnanir og fyrirtæki.
SAF í fjölmiðlum
Eitt mikilvægasta hlutverk Samtaka ferðaþjónustunnar er að vera talsmaður atvinnugreinarinnar út á við, taka virkan þátt í opinberri umræðu um greinina og koma á framfæri upplýsingum, t.d. um rekstraraðstæður fyrirtækja, þróun ferðaþjónustu og framtíðarsýn og mikilvægi hennar fyrir efnahag og lífskjör á Íslandi.
Stjórn og starfsfólk SAF vinnur að þessu hlutverki með afar mikilvægum stuðningi félagsmanna samtakanna sem efla málefnalega umræðu um ferðaþjónustuna, m.a. með greinum, viðtölum og þátttöku í umræðu á samfélagsmiðlum.
Hér má sjá yfirlit tekið saman af Cohn&Wolfe um hlut SAF í fjölmiðlaumfjöllun sem birtist á ýmsum miðlum á vefnum á árinu 2023.


Viðburðir á vegum SAF
Samtökin stóðu fyrir fjölda félagsfunda, kynninga, upplýsingafunda á árinu og nýttu vel tækifærið sem gafst til viðburðahalds þegar samkomutakmörkunum var loks aflétt.
Samtökin stóðu einnig fyrir viðburðum í góðu samstarfi við ýmsa aðila, þar á meðal Samtök atvinnulífsins, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslenska ferðaklasann, KPMG, Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu og Ferðamálastofu svo fáeinir séu nefndir. Þá nýttu samtökin möguleika á útsendingu viðburða á vefnum á langflestum viðburðum sínum til að auka möguleika allra félagsmanna til að fylgjast með og taka þátt í þeim.
Aðalfundur SAF var haldinn á Fosshótel Stykkishólmi í mars 2023 og 25 ára afmæli samtakanna var fagnað með veglegri afmælisráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica sem um 400 gestir sóttu, þar sem boðið var upp á fjölda viðburða með lotufyrirkomulagi í fjórum þemum, um framtíð ferðaþjónustunnar, vöruþróun í greininni, þekkingu á ferðaþjónustu og áhrif hennar á samfélagið.